Heilbrigðar blæðingar

Heilbrigðar blæðingar

Einkenni fyrirtíðarspennu (PMS) eru persónubundin. Sumar konur finna fyrir miklum óþægindum en aðra konur finna varla að PMS hafi mikil áhrif á líðan þeirra.  Tíðahringurinn er hins vegar ekki bara mánaðarleg óþægindi? Tíðarhringurinn getur gefið mikilvægar heilsufarslegar upplýsingar.

Að gefa gaum að lit og flæði blæðinga getur veitt innsýn í líðan þína og heilsu. En hvað getum við lesið út úr tíðahringnum? Hvaða upplýsingar geta blæðingar gefið um heilsufar?

Breytingar á tíðamynstri, þar með talið óreglulegar blæðingar eða óeðlilegar blæðingar, geta bent til undirliggjandi heilsufarsvandamála, þar með talið fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS), skjaldkirtilssjúkdóma eða legslímuflakk. Það er mikilvægt að fylgjast með breytingum á blæðingum og hafa samband við lækni ef þær verða áhyggjuefni.

Litur tíðarblóðs getur verið mismunandi og gefið upplýsingar um mismunandi heilsufar.

Mismunandi litabrigði

Bjartrautt: Ferskt, skærrautt blóð gefur venjulega til kynna heilbrigt flæði. Það bendir til þess að blóðið renni úr leginu á eðlilegum hraða.

Dökkrautt: Blóð sem virðist dökkrautt undir lok blæðinga er eðlilegt. Dökkrautt blóð er líklega eldra blóð sem hefur tekið lengri tíma að fara út úr leginu.

Brúnt: Brúnt tíðablóð kemur oft fram í upphafi eða lok hringrásarinnar. Það er venjulega bara eldra blóð sem hefur oxast og er engin ástæða til að hafa áhyggjur af því.

Bleikt: Ljósbleikt blóð getur komið fram á milli blæðinga og er almennt skaðlaust. Þetta getur gerst vegna hormónasveiflna eða minniháttar ertingar.

Gráleitt eða vatnskennt: Gráleitt eða vatnskennt blóð getur bent til sýkingar. Í þeim tilfellum er mikilvægt að hafa samráð við lækni.

Heilbrigður tíðarhringur

Heilbrigður tíðahringur einkennist af eftirfarandi: Stöðugur hringur (venjulega á milli 21 - 35 dagar). Blæðing varir á milli 2 - 7 daga. Hóflegt flæði, hvorki of mikið né of lítið. Lítil eða engin storknun. Lítil sem engin óþægindi eða sársauki.

Það er mikilvægt að hafa í huga að það eru til margvísleg einnkenni af fyrirtíðarspennu eða PMS sem stjórnast af mismunandi hormónajafnvægi.

Óheilbrigður tíðarhringur

DR.VEGAN hefur staðið fyrir rannsóknum á mismunandi einkennum PMS.

Rannsóknir DR.VEGAN á yfir 250 konum leiddu í ljós yfir 20 einkenni PMS.

Yfir tveir þriðju hlutar kvenna upplifa skapsveiflur og uppþembu á meðan meira en helmingur þjáist af þreytu. Bjúgur er einnig algengt einkenni.

Óheilbrigður tíðarhringur getur komið fram á ýmsa vegu. Algengustu einkennin eru eftirtalin: Mikil blæðing sem rennur fljótt í gegnum púða eða tappa. Miklir krampar eða grindarverkir sem trufla daglegar athafnir. Óreglulegar tíðir eða viðvarandi blettablæðing á milli tímabila. Einnig geta komið fram óeðlilegar breytingar á blóðlit eða áferð.

Þurrkur í leggöngum og sýkingar

Þurrkur í leggöngum er algengt áhyggjuefni hjá mörgum konum og getur stafað af ýmsum ástæðum. T.d. hormónabreytingum á blæðingum, meðgöngu, brjóstagjöf og einnig þegar konur ganga í gegnum tíðahvörf -menopause.

Ef þurrkur er tíður í leggöngum þá getur verið um að ræða þvagfærasýkingu, bakteríusýkingu eða sveppasýkingu. Þetta getur það líka stafað af örveruójafnvægi í leggöngum.

Hvenær á að hafa samband við lækni

Það verða allir að taka ábyrgð á eigin heilsu og meta hvenær réttast er að hafa samband við lækni. Þó að einstaka breytingar á blæðingum séu eðlilegar er nauðsynlegt að vera vakandi og átta sig á einkennum sem geta gefið til kynna að eitthvað sé ekki eins og það á að vera.

Ágæt þumalputtaregla er að hafa samband við lækni ef um er að ræða eftirfarandi: Viðvarandi, miklar blæðingar. Miklir grindarverkir eða krampar. Óreglulegar blæðingar eða verulegar breytingar á tíðamynstri. Einnig ef um er að ræða óvenjulega útferð eða vonda lykt.

Vopnabúrið hjá DR.VEGAN

PH Hero® er alhliða formúla af probiotics, prebiotics (meltingargerlum og fæðu fyrir meltingargerla) og grasafræðilegum efnum sem stuðla að jafnvægi á örveruflóru í leggöngum og heilbrigðu pH jafnvægi.

PMS Hero® er háþróuð formúla sem dregur úr algengum einkennum blæðinga, þar á meðal krampa, eymsla í brjóstum, uppþembu, skapsveiflum og pirringi. 9 af hverjum 10 konum sem taka PMS Hero® finna mikinn mun.

Veljum vítamín sem virka og höfnum óæskilegum aukaefnum.

(Pósturinn er byggður á heimildum frá DR.VEGAN)