Triple Move er frábær viðbót í NORDBO fjölskylduna og hönnuð til þess að hjálpa þeim sem þjást af liðverkjum og bólgum.
NORDBO Triple Move sameinar þrjú innihaldsefni úr jurtaríkinu:
Brómelain, Túrmerik og Boswellia. Brómelain er próteinleysandi ensím sem unnið er úr ananas og hefur reynst hafa bólgueyðandi eiginleika. Túrmerik er rót sem tilheyrir engiferættinni og inniheldur curcumin sem er bólgueyðandi efni. Túrmerikið í Triple Move inniheldur allt að 95% curcumin. Boswellia er indverskt reykelsistré, en þykkni þess hjálpar til við að viðhalda heilbrigðum og sveigjanlegum liðum með því að draga úr bólgu og auka blóðflæði.
Triple Move sameinar þannig jurtir sem náttúrulæknar hafa notað um árabil til þess að draga úr bólgum og liðverkjum.
Nánar tiltekið er Boswellia talið mjög öflugt til þess að draga úr bólgum og hafa ýmis gigtarsamtök mælt eindregið með jurtinni fyrir þá sem þurfa að draga úr bólgum og liðverkjum. Boswellia er einnig notað af mörgum sem aðhyllast Ayurveda fræðin. Boswellia er þekkt fyrir að geta dregið úr gigtareinkennum, innvortis bólgum, asma og hjálpað þeim sem þjást af IBD (crohn´s disease). Boswellia hentar ekki þunguðum konum eða konum sem eru með barn á brjósti.
Brómelain hefur verið þekkt lengi sem jurt sem getur dregið úr bólgum og verkjum. Brómelain er m.a. talið virka vel fyrir þá sem eru að reyna að vinna á innvortis bólgum, verkjum vegna nýrnasteina eða bruna og er talið gott fyrir þá sem nota lyf sem geta valdið bólgum.
Rétt er að taka fram að fæðubótarefni virka ekki fyrir alla og aldrei á að taka fæðubótarefni til þess að slá á alvarlega sjúkdóma án þess að ráðfæra sig við lækni.
NORDBO er besti aukabitinn.